- Greiningar og meðferð fullorðinna, unglinga og ungs fólks við
- kvíðavanda
- þunglyndi
- lágu sjálfsmati
- átröskunum
- Hópmeðferð
- ADHD greiningar
Friðný lauk BA prófi í sálfræði við Háskóla Íslands 2005 og Cand.Psych. prófi frá sama skóla 2010, með áherslu á klíníska sálfræði fullorðinna og barna.
Hún hefur starfað sem sálfræðingur síðan 2012, m.a. við ADHD ráðgjöf til foreldra á vegum Akureyrarbæjar. Friðný hefur starfað við geðdeild og göngudeild geðdeildar, SAk frá 2013. Hún hefur starfað hjá Sálfræðiþjónustu Norðurlands frá 2013.