Friðný Hrönn Helgadóttir

Greiningar og meðferð fullorðinna, unglinga og ungs fólks við :

  • Kvíðavanda
  • Þunglyndi
  • Lágu sjálfsmati
  • Átröskunum

Friðný sinnir einnig hópmeðferðum ásamt ADHD greiningum.

Friðný lauk BA prófi í sálfræði við Háskóla Íslands 2005 og Cand.Psych. prófi frá sama skóla 2010, með áherslu á klíníska sálfræði fullorðinna og barna.

Hún hefur starfað sem sálfræðingur síðan 2012, m.a. við ADHD ráðgjöf á vegum Akureyrarbæjar þar sem unnið er með foreldra og börn. Friðný var í starfsnámi á geðsviði Landsspítala háskólasjúkrahúss og hefur starfað við geðdeild og göngudeild geðdeildar og á innlagnardeild SAk frá 2013 og verið yfirsálfræðingur þar frá 2017. Samhliða því hóf hún störf hjá Sálfræðiþjónustu Norðurlands og hefur starfað þar frá 2013.