Alice Harpa Björgvinsdóttir – eigandi

Greiningar og meðferð fullorðinna við :

  • Kvíðavanda
  • Þunglyndi
  • Lágu sjálfsmati
  • Átröskunum

Alice sinnir einnig hópmeðferðum og ADHD greiningum.

Alice hefur starfað sem sálfræðingur síðan 2004. Hún lauk BA prófi í sálfræði frá Háskóla Íslands 2002 og Cand.Psych. prófi frá sama skóla árið 2004, með áherslu á klíníska sálfræði fullorðinna og barna.

Hún hlaut sérfræðiviðurkenningu sem klínískur sálfræðingur 2018.

Alice var í starfsnámi á Sjúkrahúsinu á Akureyri og hóf störf þar árið 2004 á geðdeild og göngudeild geðdeildar. Hún starfaði sem framkvæmdastjóri lyflækningasviðs SAk frá árinu 2015-2023. Alice hefur starfað á stofu frá árinu 2005 og undir nafni Sálfræðiþjónustu Norðurlands frá 2011.